Almennt
Hestamennt áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

 

Greiðslufyrirkomulag

Námskeiðin eru greidd í gegnum örugga greiðslusíðu Korta.

Endurgreiðsla 

Komi til afbókunar á námskeiði er leitast við að finna annað námskeið fyrir nemandann, takist það ekki er miðað við 80% endurgreiðslu sé afbókað að minsta kosti viku áður en námskeið hefst.

 

Meðhöndlun persónuupplýsinga

Allar upplýsingar um kaupanda verður farið með í samræmi við lög og reglur um meðferð persónuupplýsinga. Upplýsingarnar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Öryggismál

Allir nemendur fá reiðhjálma við hæfi og gætum við vel upp á að hjálmarnir passi vel og sitji rétt. ​
Í útreiðartúrum og við umhirðu hesta þarf ávallt að gæta fyllsta öryggis. Nemendur verða að fara varlega í umgengni við hestana og á hestbaki og hlýta fyrirmælum leiðbeinanda.